Þegar dvalið er í Reykjavík um skemmri tíma er gott að vera staðsettur nálægt miðbænum, stutt frá veitingastöðum, leikhúsi, verslun og annari þjónustu. Frá Ránargötunni er aðeins um fimmhundruð metrar að Ingólfstorgi í miðbæ Reykjavíkur og álíka langt niður á Ægisgarð í Hvalaskoðun eða bara til að njóta mannlífsins við höfnina.